Skip to Main Content (Press Enter)

Finndu bílinn sem hentar þér

  • Sjálfhlaðandi Hybrid

    Rafmagn og bensínafl í einni háþróaðri Hybridaflrás sem sameinar það besta frá báðum heimum án þess að þurfa að hlaða.
  • Plug-in Hybrid

    Öflug Hybrid tækni með hreinu rafmagni sem gerir kleift að keyra á rafmagni í styttri ferðum. Þegar hleðslan klárast tekur Hybrid kerfið við.  
  • Rafmagn

    Rafbílar eru eingöngu með rafhlöðu og útkoman er í senn skemmtilegur akstur með engum CO₂ útblæstri.  

Rafvæðing Toyota

  •  

    Toyota kynnti Hybrid tæknina fyrst fyrir heiminum árið 1997 með Toyota Prius. Í dag keyra yfir 15 milljónir ökumanna um allan heim á Toyota Hybrid bílum. Við höfum þróað og bætt Hybrid bílana okkar og bætt Plug-in Hybrid og rafmagnsbílum í Toyota fjölskylsuna og bjóðum stolt upp á úrval af flottum, kraftmiklum sem og hagkvæmum bílum sem henta þínum lífstíl.

Það borgar sig að breyta

Minnkaðu fótsporið

Það eru margir kostir við rafbíla. Minni koltvísýringslosun er góð fyrir jörðina og þýðir lægri bifreiðaskatta, sem sparar þér peninga.

Veldu hvernig þú hleður

Kostir rafbíla felst meðal annars í því að geta hlaðið bílinn þegar og þar sem það hentar. Það er hagkvæmt og auðvelt að hlaða bílinn heima yfir nóttina, alveg eins og þú hleður símann.

Skattaívilanir

Ýmis fríðindi svo sem skattaívilnanir vegna atvinnureksturs og styrkur til kaupa á nýjum rafbílum gera skiptin hagstæð.

Sparaðu eldsneyti

Það getur tekið minni tíma og verið þægilegra að hlaða rafbíl en að fylla á bensín- eða dísilbíl, svo ekki sé minnst á kostnaðinn.

Kynntu þér úrvalið

Algengar spurningar

EV stendur fyrir Electric Vehicle, eða rafbíl. Stundum er líka talað um BEV, sem stendur fyrir Battery Electric Vehicle, bíl sem eingöngu er knúinn af rafhlöðu. Í báðum tilvikum notar bíllinn rafmótor í stað brunahreyfils og rafhlöðu í stað eldsneytisgeymis. Rafbílar eru endurhlaðnir í stað þess að eldsneyti sé sett á þá. Þeir eru einstaklega liprir og hljóðlátir og skila einnig kraftmikilli hröðun og ferskri og skemmtilegri akstursupplifun.  

Rafbíll gengur eingöngu fyrir rafhlöðu. Hybrid-bílar eru með skilvirka bensínvél og rafknúna aflrás sem samanstendur af sjálfhlaðandi rafhlöðu og rafmótor. Hybrid-bílar skipta hnökralaust á milli bensín- og raforku eftir því sem þörf krefur. 

Líkt og Hybrid bílar skipta Plug-in Hybrid-bílar á milli tveggja aflgjafa, bensínvélar og rafmótors sem knúinn er með rafhlöðu. Rafhlaðan í Plug-in Hybrid-bíl er þó stærri, sem gefur meiri möguleika á rafknúnum akstri, aukin afköst og skilar minni útblæstri og eldsneytisnotkun með reglulegri hleðslu.  

Venjulegur rafbíll gengur fyrir rafhlöðu sem þarf að endurhlaða þegar langt er gengið á hleðsluna. Vetnisknúnir bílar með efnarafali framleiða eigið rafmagn með efnarafalsstæðu bílsins.