Land Cruiser er endurfæddur. Sterkbyggð og stílhrein hönnun sem sæmir endurfæddri goðsögn. Nýr Land Cruiser er strangheiðarlegur grindarbíll hlaðinn tækni sem endurskilgreinir hvað sé mögulegt. Nýr heimur ævintýra er að opnast. Fimm útfærslur verða í boði í almennri sölu: First Edition, Luxury, VX, GX Plus og GX
16.500.000 - 25.000.000 kr.
Ásamt því að viðhalda notagildi upprunalega bílsins þá hafði Land Cruiser 20 einnig uppfærða fjöðrun og úrval yfirbygginga. Hann spilaði lykilhlutverk í að tryggja orðspor Toyota fyrir styrk og áreiðanleika.
Einkennandi sterkbyggð hönnun, hvítt þak, sveigðar rúður á afturhluta og stutt aðgangshorn. 40 Cruiserinn var einnig fyrsti Land Cruiserinn til að hafa hátt og lágt drif sem gerði hann enn betri í torfærum.
Land Cruiser 40 var orðinn 25 ára gamall þegar Toyota kom með 70 bílinn. Hann var flottari og fágaðari en forverinn en hélt að sjálfsögðu í gömlu gildin um getu og endingu sem voru orðin samofin Land Cruiser nafninu.
Hinn fjölhæfi 90 Cruiser tók við keflinu en hann kom með sjálfstæðri fjöðrun að framan sem bætti akstureiginleika bílsins. Hægt var að velja úr úrvali mismunandi véla bæði bensín og dísel.
Eftir mikla þróunarvinnu sem hófst árið 1997 kom 120 bíllinn. Bíllinn hafði mjög einkennandi útlit sem var þróað hjá hönnunarstöð Toyota í Evrópu.
Árið 2009 mætti svo 150 Cruiserinn með frábæra endingu og hæfni í erfiðum aðstæðum. Hann hefur verið vinsæll um allan heim enda þekktur fyrir að koma fólki hvert sem það þarf – eða vill – komast.