ALHLIÐA LAUSN FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI
Toyota vinnur með fyrirtækjum að heildarlausnum í bílamálum. Allt frá sölu, leigu eða endurkaupum á bílum, alhliða viðgerðum og viðhaldi ásamt sölu á auka- og varahlutum. Fyrirtæki sem notast við bíla í rekstri vita mikilvægi hagkvæmni við umsýslu bílanna. Bilanatíðni á að vera í lágmarki og nauðsynlegt er að hægt sé að útvega varahluti og þjónustu hratt og örugglega. Fyrirtækjum sem vilja stuðla að lágu kolefnaspori standa til boða vistvænir bílar úr Hybrid línu Toyota. Síðast en ekki síst þurfa ökutækin að vera endingagóð og uppfylla ströng skilyrði varðandi aðbúnað og öryggi ökumanns.