Klár í hvað sem er

Klár í hvað sem er, Proace er fjölhæfur sendibíll. Hann er búinn fjölbreyttum tæknilausnum sem aðstoða þig við aksturinn. Veldu á milli tveggja yfirbygginga og tveggja lengda sem henta þínum atvinnurekstri.

Toyota Professional -  Fyrirtækjalausnir

Fyrir þig

Við veitum fyrirtækjum þær vörur og þjónustu sem þau þurfa til að halda sér gangandi. Kynntu þér Toyota Professional – þinn samstarfsaðila

Toyota Relax

Toyota Relax ábyrgð býður upp á þann kost að framlengja ábyrgðina á viðkomandi bifreiðum um 12 mánuði / 15.000 km (20.000 km í tilviki Proace) í senn – hvort sem fyrr kemur – eftir að 5 ára eða 7 ára ábyrgð frá innflutningsaðilanum er útrunnin eða í þann mund að renna út. Það eina sem eigandi bifreiðarinnar þarf að gera er að koma með hana í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. Toyota Relax er í boði þar til Toyota bifreið hefur náð 10 ára aldri eða verið ekin 200.000 km eða meira – hvort sem fyrr kemur.

Hraðþjónusta Toyota

Reglulegt viðhald er lykilatriði til að hámarka endingu bílsins og öryggi farþeganna. Hraðþjónustan sinnir meðal annars:  - bilanagreiningum  - smurþjónustu - peruskiptum - smærri viðgerðum. Viðskiptavinir geta í flestum tilfellum beðið á meðan þjónustunni er sinnt eða fengið afnot af bíl hjá Toyota Professional ef það hentar betur. Ef upp koma verkefni sem ná út fyrir ramma hraðþjónustu veitir starfsfólk leiðbeiningar um aðra lausn.

Vegaaðstoð

Ökutæki Toyota Professional eru eins áreiðanleg og mögulegt er. En vandamál geta komið upp, sérstaklega þegar veður eru slæm eða vegir ekki upp á sitt besta. Þess vegna bíður Toyota Professional 12 mánaða vegaaðstoð með öllum nýjum og notuðum keyptum bílum 365 daga ársins. *Ath vegaaðstoðin gildir eingöngu fyrir bíla keypta 1. júlí 2023 eða síðar. Hafðu samband við vegaaðstoð í síma 5 112 112

Afnot af bíl

Ekki hafa áhyggjur af því að vera bíllaus. Toyota Professional sér til þess bjóða uppá fjölbreytt úrval af bílum ef eitthvað kemur uppá eða ef bíllinn þarf að fara á verkstæði.

Toyota tryggingar

Tryggð frá fyrsta starti, þú getur gengið frá kaupunum á ökutækjatryggingunni þegar í stað á einfaldan og þægilegan hátt á toyotatryggingar.is

Veldu þann sem hentar þér

Proace fyrir öll verk

Proace býðst í mismunandi samsetningum, finndu þann sem hentar fyrir þig. Veldu á milli tveggja yfirbygginga og tveggja lengda.  

Gott hleðslyrými
Áreynslulaus hleðsla
Auðvelt aðgengi
Smart Cargo
Crew Cab

Gott hleðslyrými

Með rausnarlegri getu og hleðslu og vali milli tveggja yfirbygginga er Proace tilbúinn í hvað sem er. Hannaður fyrir fjölhæfni, með 1400 kg hleðslugetu (millilangur). Proace er hinn fullkomni alhliða vinnuhestur.

Áreynslulaus hleðsla

Fljótleg og auðveld hleðsla er mikilvæg fyrir framleiðni. Proace gerir dagleg störf auðveldari með skilvirkri hönnun og úthugsuðum smáatriðum. Hleðslugólfið er flatt og laust við hindranir sem gerir það auðveldara að hlaða og losa þunga hluti.

Auðvelt aðgengi

Proace býður upp á marga hurðavalkosti svo þú getur valið það sem hentar þér best. Aðgangur að hleðslurýminu gæti ekki verið auðveldari. Stóru hliðarhurðirnar renna vel út til hliðar sem auðvelda þér aðgengi að hleðslurýminu.

Smart Cargo

Smart Cargo gefur þér sveigjanleika til að flytja langan farm, með auka hleðslulengd upp á 116 cm þegar þú þarft á því að halda. Sveigjanlegt skilrúm sem gefur þér auka rými.

Crew Cab

Fullkomið dæmi um sveigjanleika til að gera hvað sem er, Crew Cab sameinar rausnarlega flutningsgetu og pláss fyrir sex í sæti í fullkomnum þægindum. Og þegar þú þarft stærra hleðslurými getur þú leggt niður sætin til þess að skapa meira pláss.

Rými sem vinnur fyrir þig

Proace sameinar frábæra aksturgetu og fjölhæfni, þar sem hvergi er slakað á kröfunum, og afkastagetu og með Proace Electric færðu skilvirkni rafknúinnar aflrásar sem skilar engum útblæstri. Sama hverjar kröfurnar eru þá er Proace til staðar fyrir þig. Annasömu lífi í borginni og störfum utanbæjar er sinnt með óviðjafnanlegri afkastagetu.

  • Aflrásir

    Þitt er valið

    Hverjar sem kröfur þínar eru, þá hefur Proace aflrás sem hentar. Veldu á milli tveggja dísilvélakosta eða hagkvæmrar raforku.

Skrifstofa á hjólum

Snjöll innrétting sem er sérsniðin fyrir lífið á veginum, Proace sameinar þægindi og afköst. Mættu afslappaður og tilbúinn í daginn framundan þökk sé hljóðlátu, loftkældu farþegarými sem er búið þeirri tækni sem þú þarft.

Öryggi

Öryggi, Öruggari, Öruggastur

Toyota Proace er búinn Toyota Safety Sense aksturaðstoðarkerfum sem aðstoða þig við aksturinn með það að markmiði að auka öryggi þitt og annara í umferðinni. Hvort sem þú ert að sinna erindum í borginni eða úti á þjóðveginum.

Hugvitsamleg akstursaðstoð

Umferðin er oft hröð og annasamt akstursumhverfi nútímans fyrirgefur ekki augnabliks athyglisbrest. Úrval af snjöllum aðstoðaraksturskerfum Toyota passar uppá þig og vinnur að því að koma í veg fyrir árekstra og halda þér og öðrum vegfarendum öruggari í umferðinni.
  • Árekstrarviðvörunarkerfi með greiningu gangandi vegfarenda

    Árekstrarviðvörunarkerfið getur greint hættu á árekstrum og aðstoðað þig við að forðast árekstra við aðra bíla, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og mótorhjól. Það varar ökumann við með hljóðmerkjum, sjónrænum viðvörunum og hemlunaraðstoð til að forðast eða draga úr höggi við árekstur.

  • Þetta kerfi heldur þér í tiltekinni fyrirframstilltri lágmarksfjarlægð frá næsta bíl fyrir framan. Þegar of stutt er í næsta bíl dregur kerfið úr hraðanum og beitir loks hemlunum og kveikir hemlaljósin.

  • Með aðstoð myndavéla sem greina veginn framundan varar akreinavarinn ökumann með hljóð- og ljósmerkjum ef bílinn byrjar að stefna út af akreininni. Stýrisaðstoðin beygir bílnum mjúklega aftur inn á miðju vegar.

  • Skynjarar fylgjast stöðugt með fjarlægð frá næsta bíl og öðrum hindrunum sem kunna að vera á veginum. Ef fjarlægðarskynjararnir greina hættu á árekstri mun kerfið bregðast við með því að hemla til þess að koma í veg fyrir árekstur eða draga úr höggi.

  • Umferðarskiltaaðstoðin í Toyota Safety Sense fylgist með umferðarskiltum fram undan og birtir gagnlegar upplýsingar, svo sem um gildandi hámarkshraða eða takmarkanir á framúrakstri, með skýrum hætti á nýja TFT-litaskjánum. Kerfið varar einnig við bæði með hljóðmerki og sýnilegum viðvörunum ef ekki er farið eftir umferðarskiltunum.

  • Þetta kerfi aðstoðar ökumanninn við að halda bílnum á akreininni. Kerfið greinir beygjuna fram undan og aðlagar stýrisaðstoðina eftir þörfum. Það getur einnig hjálpað til við betri akstur í beinni línu.

Kynntu þér þær útfærslur sem eru í boði

Veldu útfærslu

5 Valmöguleikar

  • Proace - LX - Sendibíll millilangur

    Proace LX

    Sendibíll millilangur

    Veldu vél


    Frá

    7.590.000 kr.

    6 gíra beinskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.5 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      196 g/km

    Frá

    9.390.000 kr.

    EV sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      0 g/km
    • Drægni - blandaður akstur
      196 km
    • Eyðsla (kWh/100km)
      23.9 kWh/100km
  • Proace - LX - Sendibíll langur

    Proace LX

    Sendibíll langur

    Veldu vél


    Frá

    7.790.000 kr.

    6 gíra beinskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.5 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      198 g/km

    Frá

    9.990.000 kr.

    EV sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      0 g/km
    • Drægni - blandaður akstur
      313 km
    • Eyðsla (kWh/100km)
      24.3 kWh/100km
  • Proace - GX - Sendibíll millilangur

    Proace GX

    Sendibíll millilangur

    Veldu vél


    Frá

    9.490.000 kr.

    8 þrepa sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.5 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      196 g/km

    Frá

    9.190.000 kr.

    8 þrepa sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.6 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      200 g/km

    Frá

    10.890.000 kr.

    EV sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      0 g/km
    • Drægni - blandaður akstur
      313 km
    • Eyðsla (kWh/100km)
      24.1 kWh/100km
  • Proace - GX - Sendibíll langur

    Proace GX

    Sendibíll langur

    Veldu vél


    Frá

    9.690.000 kr.

    8 þrepa sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.6 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      199 g/km

    Frá

    9.390.000 kr.

    8 þrepa sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.8 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      203 g/km

    Frá

    11.090.000 kr.

    EV sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      0 g/km
    • Drægni - blandaður akstur
      313 km
    • Eyðsla (kWh/100km)
      24.4 kWh/100km
  • Proace - Black - Sendibíll langur

    Proace Black

    Sendibíll langur

    Veldu vél


    Frá

    9.790.000 kr.

    8 þrepa sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      7.6 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      199 g/km

    Frá

    11.190.000 kr.

    EV sjálfskipting | 2WD
    • Blandaður akstur l/100km
      0 l/100 km
    • CO₂ blandaður akstur g/km
      0 g/km
    • Drægni - blandaður akstur
      313 km
    • Eyðsla (kWh/100km)
      25.1 kWh/100km

Aukahlutir

Búnaður til að auðvelda þér atvinnureksturinn  

Aukahlutir Toyota gefa þér kost á að sérsníða Proace. Ýmsir samgöngu-, verndar- og öryggisvalkostir eru í boði fyrir ólíkar atvinnugreinar.